Costa Marina verð frá € 650. Íbúð með 3 svefnherbergjum og suðursvölum. Frábær staðsetning

Penthouse íbúð í Inmoepul II með 2 svefnherbergjum. Verð frá €550 Frábær staðsetning

Sól og sandur í sólarparadísinni Cabo Roig á Spáni þar sem drifhvítar baðstrendur Costa Blanca strandlengjunnar og fjöldi frábærra veitingastaða bíða þín. 

Tvær mjög góðar og vel staðsettar íbúðir til leigu í strandbænum Cabo Roig, sem er þekktur fyrir frábærar verðlaunaðar baðstrendur, tugi veitingastaða og iðandi mannlíf.  Íbúðirnar eru báðar í 10-15 mínútna göngufæri við baðströndina frábæru í Cabo Roig. Sérstaða svæðisins eru drifhvítar baðstrendur og einnig hinir fjölmörgu frábæru veitingastaðir þar sem auðvelt er að gæla við bragðlaukana á viðráðanlegu verði.  Allar helstu nauðsynjar þ.e. matvöru og sérvöruverslanir, bankar, bakarí, heilsugæslustöð, barir, kaffihús og veitingastaðir eru í stuttu göngufæri við íbúðirnar og því auðvelt að spara sér kostnað við að leigja bílaleigubíl.  Staðsetningin er einnig mjög góð fyrir þá sem spila golf því fjórir mjög góðir golfvellir Villa Martin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas eru í 5 - 10 mínútna akstursfjarlægð.

Einungis er um 10 - 12 mínútna göngufjarlægð á milli íbúðanna og liggur leiðin í gegn um göngugötuna vinsælu í Cabo Roig með um 60 - 70 veitingastaði og bari og sést vel ef smellt er á kort í valstikunni hér ofar á síðunni. Sökum nálægðar henta íbúðarnar mjög vel fyrir tvær fjölskyldur sem vilja njóta þess að vera í fríi saman á þessu frábæra svæði.

Flugvallaakstur:   Akstur til og frá flugvelli og í íbúðirnar kosta € 65 í 5 manna bíl og € 75 í 7 manna bíl.  Hægt er að panta flugvallaakstur með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Panta flugvallaakstur

Umsjón á Spáni:  www.hreineign.com  Sími+34 600 728 653

Fyrirspurnir / Bókanir:  s.659-4444   house.in.spain@hotmail.com 

Share this page