• Smella hér

    Costa Marina verð frá € 650. Íbúð með 3 svefnherbergjum og suðursvölum. Frábær staðsetning

  • Smella hér

    Inmoepul II verð frá € 550 Penthouse íbúð með 2 svefnherbergjum. Frábær staðsetning

Dreymir þig um að njóta lífsins og slaka á í sólarparadísinni Cabo Roig á Spáni þar sem drifhvítar baðstrendur Costa Blanca strandlengjunnar og fjöldi frábærra veitingastaða bíða þín. 

Getum boðið upp á tvær mjög vel staðsettar íbúðir til leigu í strandbænum  Cabo Roig, sem er þekktur fyrir frábærar verðlaunaðar baðstrendur, tugi veitingastaða og iðandi mannlíf.  Íbúðirnar eru báðar í 10-12 mínútna göngufæri við baðströndina í Cabo Roig. Sérstaða svæðisins eru drifhvítar baðstrendur og einnig hinir fjölmörgu frábæru veitingastair þar sem auðvelt er að gæla við bragðlaukana á viðráðanlegu verði.  Allar helstu nauðsynjar þ.e. matvöru og sérvöruverslanir, bankar, bakarí, heilsugæslustöð, barir, kaffihús og veitingastaðir eru í stuttu göngufæri 1 - 15 mín við íbúðirnar og því auðvelt að spara sér kostnað við að leigja bílaleigubíl.  Staðsetningin er einnig mjög góð fyrir þá sem spila golf því fjórir mjög góðir golfvellir Villa Martin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas eru í 5 - 10 mínútna akstursfjarlægð.

Einungis er um 10 - 12 mínútna göngufjarlægð á milli íbúðanna og liggur leiðin í gegn um göngugötuna vinsælu í Cabo Roig með um 60 - 70 veitingastaði og bari frá öllum heimshornum. Sökum nálægðar henta íbúðarnar mjög vel fyrir tvær fjölskyldur sem vilja njóta þess að vera saman á þessu frábæra svæði.

Getum boðið upp á að fólk verði sótt á Alicante flugvöll og því ekið til baka að dvöl lokinni.

Undirbúningur fyrir Spánarferð. Spænsk heilbritðisyfirvöld gera ekki lengur kröfu um að fólk framvísi bólusetningavottorðum eða vottorðum um staðfest smit.  Ekki þarf því að sýna nein gögn vegna Covid við komuna til Spánar.

Umsjón á Spáni:  www.hreineign.com  Sími+34 600 728 653

Fyrirspurnir / Bókanir:  s.659-4444   house.in.spain@hotmail.com