Íbúðin: Mjög vel staðsett tveggja svefnherbergja Penthouse íbúð með svefnaðstöðu fyrir 4 - 5 manns og öllum helstu nútíma þægindum, staðsett í strandbænum Cabo Roig, sem er um 8 km sunnan við miðbæ Torrevieja. Loftkæling er í stofu og báðum svefnherbergjum. Gerfihnattasjónvarp er í íbúðinni með nokkur hundruð rásum ásamt fríu interneti. Stórar einkaþaksvalir tilheyra íbúðinni þar sem hægt er að njóta lífsins og baða sig í sólinni. Í garðinum, sem er vel afgirtur er góð sundlaug og barnalaug. Ungbarnarúm, barnakerra og bílsessa er í íbúðinni. Þar sem allar helstu nauðsynjar eru í göngufæri, er hægt að spara kostnað við að leigja bílaleigubíl.
Zenia Boulevard: Um 15 - 20 mínútna rölt er í nýju verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard þar sem finna má um 150 verslanir m.a. H&M, Primark, C&A, Zara og auðvelt að gera góð kaup.
Umsjón á Spáni: www.hreineign.com Sími+34 600 728 653
Fyrirspurnir og bókanir: s.659-4444 house.in.spain@hotmail.com
Bókunardagatal: