• 3 svefnherbergi
  • Svefnpláss fyrir 6
  • Loftkæling í stofu og hjónaherbergi
  • Loftviftur í öðrum herbergjum
  • Frítt WIFI
  • Gerfihnattasjónvarp
  • Góð sundlaug og barnalaug
  • Barnarúm, barnasessa í bíl, barnakerra
  • Lyfta í húsinu. 
  • 14 veitingastaðir og barir í Costa Marina byggingunni
  • Sabadell banki og hraðbanki er í Costa Marina byggingunni
  • Heilsugæslustöð 24/7 í næsta húsi við Costa Marina bygginguna
  • 10 -12 mínútna ganga á baðströndina í Cabo Roig
  • Íbúðin er staðsett í göngugötunni vinsælu Cabo Roig strip
  • Á Cabo Roig strip eru í það minnsta 60 - 70 frábærir veitingastaðir 
  • Á Cabo Roig strip er iðandi mannlíf á kvöldin og víða boðið uppá lifandi tónlist
  • Götumarkaður alla fimmgudaga
  • 5 mínútna ganga í matvöruverslunina Consum
  • 5 mínútna akstur í Zenia Boulevard mollið
  • Um 5 - 10 mínútna akstur á 4 flotta golfvelli
  • Um 5 mínútna akstur á góða Go Kart braut
  • Um 10 mínútna akstur í Aquopolis vatnsleikjagarðinn í Torrevieja

Íbúðin:  Mjög vel staðsett 3ja svefnherbergja björt og rúmgóð íbúð í Costa Marina byggingunni sem staðsett er í göngugötunni í strandbænum Cabo Roig. Íbúðin, sem snýr á móti suðri (suðursvalir) er búin tveimur loftkælingum í stofu og hjónaherbergi og loftviftum í hinum tveim svefnherbergjunum. Gerfihnattasjónvarp er í íbúðinni með nokkur hundruð stöðvum ásamt um 100 spænskra sjónvarpsrása.  Ungbarnarúm er í íbúðinni, ásamt barnakerru. Lyftur eru í byggingunni, sem auðvelda allt aðgengi.  Í garðinum, sem er afgirtur og með stórri sundlaug og góðri barnalaug er frábær aðstaða til að slaka á og njóta lífsins.  Frí nettenging er í íbúðinni. Þar sem allar helstu nauðsynjar eru í næsta nágrenni við íbúðina, er ekki þörf á að leigja bílaleigubíl.

Nánar um íbúðina og svæðið í kring:  Ekki þarf að fara langt til að finna góða veitingastaði eða bari, einungis að taka lyftuna niður á jarðhæð, því að í húsinu eru 14 mjög góðir veitingastaðir og barir. Heilsugæslustöð er í næsta húsi opin 24/7 og örstutt ganga í matvöru og sérvöruverslanir, bakarí, banka, líkamsræktarstöðvar og hárgreiðslustofur. Alla fimmtudaga kl.09:00 hefst götumarkaður í götu við hlið Costa Marina þar sem gera má góð kaup. Á sumrin er starfrækt lítið tívolí í götunni sem börnin elska.                   

  • Sumarleiga 15. maí - 15. október €750 vikan/ € 108 nóttin
  • Vor / haust 16. okt - 14. maí €650 viknan € 93 nóttin
  • Jól / áramót / páskar €750 vikan / € 108 nóttin
  • Staðfestingagjald 1/3 af leiguverði skal greiða um 7 dögum eftir bókun.  
  • Tryggingargjald €200 greiðist við lyklaafhendingu á Íslandi og er greitt til baka við skil á lyklum ef engar skemmdir hafa orðið í íbúðinni á leigutíma.
  • Íbúðin afhendist hrein og með hreinu líni og þurfa leigjendur að greiða fyrir brottfararþrif €90 

Fyrirspurnir og bókanir: s.659-4444  house.in.spain@hotmail.com

Bókunardagatal:

Share this page